Hvað skal segja?

Mér finnst ég einhernveginn ekki hafa neitt að segja núna.  Dagarnir líða og vonandi fer að koma vor bráðum. Ég keypti risavönd af bleiku túlípönum á markaðinum á föstudaginn og minna þeir mig alltaf á lagið Tulpen uit Amsterdam. 

Það gengur bara vel í skólanum og tónleikar á föstudaginn.  Þá fæ ég loksins að syngja Schumann sem ég er búin að verað að tala um síðan um ármótin.  Verð að viðurkenna að það verður gaman að fara að takast á við nýja hluti í næstu viku.  Ég fór aftur til A'dam um síðustu helgi en það var íslenskur tónlistardagur í tónlistaháskólanum þar í borg.  Þar voru samankomnir íslenskir nemendur úr evrópu og voru flutt verk eftir Jón Leifs, Huga Guðmunds og Skálholtsmessuna eftir Hróðmar.  Dásamleg tónlist.  Og svo var auðvitað partý á eftir og leið mér bara eins og ég væri komin í Tónó / mh-partý  það var mjög gaman.  Okkur Lilju var boðið að gista í A'dam en ákváðum að taka næturlestina heim enda alltaf best að vakna í sínu eigin rúmi.  Þetta er nú allt of sumt sem er að gerast í mínu lífi þessa daga.  Set inn nokkrar myndir frá heimilishaldinu á Zutphenlaan (suddabæ) og lífinu í Hollandi!

Kisskisssss:*

cimg0754_795511.jpgHjalti kom í heimsókn og eldaði mjög góða Túnfisksteika.

cimg0759.jpg

 

 

 

 

 

 

 

Matarboð í Jónshúsi.

cimg0766.jpgÍ Conservatorium van Amsterdam

cimg0774.jpg

 

 

 

 

 

 

 

Á góðri stund eftir tónleikana, veit ekki alveg hvað Guggý sá.....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gaman að sjá hvað þér líður vel :D rosa skemmtilegar myndir, ferðu í e-ð páskafrí? ég og Binni görum í páskáfrí á tímabilinu 15. mars -15. apríl og vorum að velta fyrir okkur að kíkja á þig einhverntíman þá ef það hentar?

Erla frænka (IP-tala skráð) 22.2.2009 kl. 17:44

2 identicon

Hæ elsku frænka mín ! Ég bara fann í dag að það vantaði  eitthvað    !!!!!  Já , já ég hef bara ekkert haft samband við hana Þórunni mína!!!!!!!!!!!  !! love you...... !     Þín frænka Brynja

Brynja frænka :) (IP-tala skráð) 22.2.2009 kl. 23:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband